Mótanefnd 2020

Jón Valgeirsson

Keppnisreglur í mótum á vegum SKOTREYN

  1. Mótanefnd fer með aðalframkvæmd móta sem haldin eru af félaginu.
  2. Dómarar eru þáttakendur sjálfir eða valdir dómarar sem munu halda reglum og stigagjöf réttri.
  3. Virða skal ákvarðanir dómara. Vafamál má leggja til endurskoðunar hjá dómurum á velli.
  4. Há byssa er leyfð. (Byssa við öxl)
  5. Skotmaður ræður hvor dúfan er skotin í double. Nema annað sé fyrir fram ákveðið af mótanefnd.
  6. Gleymi skotmenn öryggi á skotvopni skal endurtaka, en samt aðeins eitt tækifæri gefið í hverjum hring.
  7. Stoppi byssa vegna skota eða einhverja bilana skal sýna dómara á palli strax hvað sé að og ekki losa skot fyrr en dómari leyfir.
  8. Fara skal eftir reglum félagsins um 28gr. hámarks hleðslu
  9. Ekki skal trufla aðra keppendur með vítaverðum hætti á meðan þeir er í skotstöðu.
  10. Við alvarleg brot á þessum reglum mun keppandi missa þáttökurétt á því móti sem er í gangi

Úrslit styrktarmóti Landsbjargar

Skotreyn hélt í dag mót til styrktar Landsbjörg til að sýna þakklæti okkar veiðimanna fyrir þeirra góða starf.  Á fimmta tug keppenda mætti bæði félagsmenn í Skotreyn og vinir okkar frá nágrannaskotfélögunum SR og SÍH.  Hann hékk þurr alveg þangað til mótið kláraðist og allir skemmtu sér vel.  VIð þökkum kærlega öllum sem mættu, Gæðabakstri fyrir kruðerí í mannskapinn og þeim sem lögðu hönd á plóg til að gera þetta að veruleika.

Áhveðið var að birga úrslit þeirra sem náðu 20 og hærra.

Kær kveðja,

Stjórn Skotreyn.

Sæti Nafn Stig
1 Pálmi Skúlasson 28
2-3 Ævar Sveinn 27
2-3 Þórir Ingi 27
4-5 Ragnar Helgasson 24
4-5 Gunnar Bjarnasson 24
6-8 Gunnar Þór 23
6-8 Jón Valgeirs 23
6-8 Kjartan L 23
6-11 Þorkell Þorsteins 22
9-11 Sigurður Hauksson 22
9-11 Árni Geir 22
12-13 Styrmir Örn 21
12-13 Elías Elías 21
14 Aðalsteinn 20
By |nóvember 27th, 2016|Flokkar: Fréttir o.fl., Mót|Slökkt á athugasemdum við Úrslit styrktarmóti Landsbjargar

Mót til styrktar Landsbjörg, laugardaginn 26. nóvember frá 10-16.

Það er flestum Íslendingum ljóst hversu gríðarlega dýrmætt það er að eiga okkar góðu björgunarsveitir að.  Fyrir okkur sem stundum veiðar í íslenskri náttúru er það ómetanlegt að vita að til sé fólk um allt land sem er tilbúið að fara út í hvaða veður og aðstæður sem er til að bjarga mannslífum. Þetta haustið höfum við rjúpnaskyttur verið minnt illilega á það hversu fljótt skemmtilegur göngutúr með félögum á veiðislóð getur breyst í baráttu upp á líf og dauða.  Þetta haustið hafa björgunarsveitir Landsbjargar bjargað lífum veiðimanna. Til að sýna þakklæti okkar í verki hefur Skotreyn ákveðið að halda styrktarmót fyrir Landsbjörg á skotvelli Skotreynar á Álfsnesi.  Þátttökugjald, kr. 5.000 pr. keppanda mun renna óskipt til Landsbjargar.

 

Í þeirri von að sem flestir mæti og taki þátt ætlum við að hafa fyrirkomulag mótsins frábrugðið hefðbundnu mótshaldi í leirdúfuskotfimi. Mótið mun fara þannig fram að svæðið verður opið frá kl. 10-16 og aðeins verða skotnar 10 dúfur á völlum 1, 2 og 3, alls 30 dúfur.  Þátttakendur geta mætt hvenær sem er dagsins, skráð sig til keppni og skotið sínar dúfur. Þannig deilist álagið yfir daginn og þátttaka getur tekið stuttan tíma.  Keppendur fá afhent skorblað sem þeir skila inn þegar þeir hafa skotið og síðan munu úrslit verða birt á netinu.   Dúfurnar ætlum við að hafa frekar auðveldar þannig að jafnt vanir sem óvanir geti komið og skemmt sér vel.  Það verða engin verðlaun, enda tilgangurinn sá að safna peningum til að styrkja Landsbjörg.

 

Kveðja Skotreyn

By |nóvember 22nd, 2016|Flokkar: Fréttir o.fl., Mót|Slökkt á athugasemdum við Mót til styrktar Landsbjörg, laugardaginn 26. nóvember frá 10-16.

Úrslit frá Hlaðmótinu

Í gær miðvikudaginn 10.ágúst var haldið Hlaðmót. Mótið gekk frábærlega og var mjög góð mæting.

Skotreyn þakkar Hlað og keppendum fyrir frábæran dag.

hlad-logo

      patriot-logo

 

hlad-mot-2016

 

By |ágúst 11th, 2016|Flokkar: Fréttir o.fl., Mót|Slökkt á athugasemdum við Úrslit frá Hlaðmótinu

Úrslit frá Ísnesmótinu

Miðvikudaginn 27. júlí var haldið Ísnesmót. Mótið gekk frábærlega og var mjög góð mæting.

Skotreyn þakkar Ísnes og keppendum fyrir frábæran dag.

Screen Shot 2016-07-29 at 11.36.38

By |júlí 29th, 2016|Flokkar: Fréttir o.fl., Mót|Slökkt á athugasemdum við Úrslit frá Ísnesmótinu

Skotreynarmeistarinn 2016 ( Úrslit )

By |júlí 17th, 2016|Flokkar: Fréttir o.fl., Mót|Slökkt á athugasemdum við Skotreynarmeistarinn 2016 ( Úrslit )

Úrslit Pumpumóts Skotreynar.

Í gær var stórskemmtilegt pumpumót, mikið hlegið og mikið pumpað.

Við viljum þakka öllum sem mættu kærlega fyrir þátttökuna.

kv, Mótanefnd

By |júní 23rd, 2016|Flokkar: Fréttir o.fl., Mót|Slökkt á athugasemdum við Úrslit Pumpumóts Skotreynar.