Kennsla á svæði Skotreynar á laugardaginn
Góðan daginn skyttur. Næstkomandi laugardag 10.september mun hinn þekkti heimsklassa skotmaður Nikos Mavrommatis vera á svæði Skotreynar til að leiðbeina mönnum í leirdúfuskotfimi. Svæðið verður opið frá 10 til 17 en kennslan hefst um 11:00. Kennslan er mönnum að kostnaðarlausu en sá tími sem hver og einn fær ræðst af mætingu. Pylsur á grillinu [...]
Rjúpnamótið fært yfir á 24. sept
Kæru félagsmenn, karlar og konur. Vegna námskeiða þá verður Rjúpnamótið flutt til 24. sept, en á sama tíma. Glæsilegir vinningar verða í boði og fjölbreytt mót. Við vonumst til að sjá sem flesta. Með kveðju, Mótanefnd
Kennsla í Sporting skotfimi hjá Nikolaos 5. og 6. sept. n.k.
Sælir félagar. Eins og sagt var frá fyrr í sumar er Nikolaos Mavrommatis að koma til okkar í september að kenna. Hann verður á svæðinu hjá okkur mánudaginn 5. og þriðjudaginn 6. september með einkatíma. Verð fyrir kennsluna er það sama og síðast, eða 100 EUR pr. klukkutíma. Við þetta bætist þáttaka í kostnaði við [...]
Opið Laugardaginn 13 ágúst kl 10:00-17:00
Skotreyn verður opið laugardaginn 13 ágúst frá kl 10:00 til 17:00. Hvetjum við alla veiðimenn til að koma og æfa sig. Einnig eru alltaf góðar veiðisögur látnar flakka svona rétt fyrir gæs.
Úrslit frá Hlaðmótinu
Í gær miðvikudaginn 10.ágúst var haldið Hlaðmót. Mótið gekk frábærlega og var mjög góð mæting. Skotreyn þakkar Hlað og keppendum fyrir frábæran dag.
Hlaðmót 2016
Miðvikudaginn 10. ágúst verður Hlaðmót á velli Skotreynar. Boðið verður upp á mikið fjör og eðal Hreindýrapottrétt. Skotnar verða 75 dúfur og mótsgjald er 3.000kr. Keppt er í A og B flokk með þeim hætti að skipt verður í miðju eftir 50 dúfur. Mæting 18:00 og mótið hefst 18:30 Við hvetjum alla jafnt konur sem [...]
Aukaopnun laugardagana 6. og 13. ágúst
Sælir félagar. Nú styttist í gæs og áríðandi að komast í form. Ákveðið hefur verið að í stað fyrirhugaðra auka-opnunartíma á miðvikudögum verði aukaopnun á laugardögum fram að gæsatímabili. Skotsvæðið verður því opið laugardagana 6. ágúst og 13. ágúst kl 13-17 en lokað miðvikudagana 10,. og 17. ágúst.
Maraþonopnun á skotsvæðinu á Álfsnesi.
Sæl öll. Verslunarmannahelgarmánudaginn 1. ágúst verður maraþonopnun á skotsvæðinu á Álfsnesi. Opið verður frá kl. 10 um morguninn til 22 að kvöldi. Hefur þú úthald? Grillið verður sjóðandi heitt og tilvalið að koma með bita á það. Fjölskyldan velkomin. Hvetjum alla til að nýta sér þetta tækifæri til að undibúa sig fyrir 20. ágúst. Bestu [...]
Úrslit frá Ísnesmótinu
Miðvikudaginn 27. júlí var haldið Ísnesmót. Mótið gekk frábærlega og var mjög góð mæting. Skotreyn þakkar Ísnes og keppendum fyrir frábæran dag.