Fyrirlestur fyrir veiðimenn um hreindýraveiðar á Grænlandi
Sunnudaginn 22. maí kl. 16:00 mun Christine Cuyler halda fyrirlestur um hreindýraveiðar á Grænlandi. Fyrirlesturinn fer fram á ensku. Christine sér um rannsóknir á hreindýrum og sauðnautum fyrir Náttúrufræðistofnun Grænlands í Nuuk. Hún ber ábyrgð á ráðgjöf um veiðar og veiðikvóta til grænlenskra yfirvalda. Christine er með doktorspróf í líffræði frá Oslóarháskóla og hefur starf [...]