Sælir félagsmenn.
Frá og með 17.apríl verða haldnir vinnudagar á Álfsnesi hvern sunnudag.  Ætlunin er að sameina krafta okkar í vinnu á svæðinu og koma því í fyrirmyndar horf.
Mæting er á sunnudagsmorgnum kl. 9:00 og unnið til 12:00.  Þar eftir verður lítið félags/vinnumannamót í leirdúfuskotfimi fyrir þá sem mæta og taka til hendinni.
Skotreyn er rekið á sjálfboðavinnu eingöngu og því er mjög mikilvægt að félagsmenn sýni lit og hjálpi til.
Allir félagsmenn eru kvattir til að mæta.
kv
Stjórnin