Góðan og blessaðan daginn öll sömul.

Næstkomandi fimmtudag,  21. apríl (sumardaginn fyrsta), verður Vesturrastarmótið haldið.

Fyrirkomulag:

75 Dúfur,

Gjald 3.000 kr.

Mæting kl. 10:30

Mótið hefst kl. 11:00

Að venju verður A og B flokkur.

Dreginn verður út einn vinningur úr hópi allra þáttakanda.

Við hvetjum alla til þess að mæta á þetta mót, reynda jafnt sem óreynda!

Fyrir þá sem ekki vita, þá hefur verið skipuð ný mótanefnd sem samanstendur af prýðispiltunum, Gunnþóri Árnassyni, Bergi Inga Péturssyni og Stefáni Gauki Rafnssyni.

Mótardagskrá sumarsins er væntanleg í vikunni.

Hlökkum til að sjá ykkur öll.

MBK

Mótanefnd Skotreynar.