Kæru félagsmenn.
Haldið verður vaktmannakvöld til að skipuleggja vaktir á skotsvæðinu á Álfsnesi í sumar.
Við hvetjum félagsmenn sem áhuga hafa á að taka vaktir til að koma á fundinn.
Léttar veitingar í boði.
Staðsetning: Um borð í Sæbjörgu í Reykjavíkurhöfn  (Austubakki hjá varðskipunum vestan við Hörpuna)
Kveðja,
Vaktstjórn Skotreynar