Kæru félagar.

Nú er komið að því að manna vaktir. Við ætlum að hittast uppi í félagsheimili á Álfsnesinu miðvikudaginn 1. ágúst kl. 18:00. Félagið okkar er rekið í sjálfboðavinnu og því takmarkast öll þjónusta félagsins við félagsmenn við þá hjálp sem félagar sjálfir eru tilbúnir að leggja félaginu til. Við höldum úti einhverju flottasta haglabyssuskotæfingasvæði landsins á lægstu félagsgjöldum sem þekkjast hjá skotfélögum og það er jú ekki hægt nema treysta á þá fjölmörgu félagsmenn sem eru tilbúnir til að gefa félaginu af tíma sínum. Við biðlum því til allra að hjálpast að og leggja sitt af mörkum.

Vaktmönnum er umbunað fyrir vaktir með hringjum fyrir hverja vakt, en að auki hafa vaktmenn aðgengi að svæðinu fyrir utan almenna opnunartíma og geta því komið og æft sig einir eða með félögum þegar þeim sjálfum hentar.

Við vonumst til að sjá sem flesta mæta á fundinn, gæða sér á pizzum og skrá sig á vakt.

Kær kveðja, Stjórnin