Skemmtilegasta mót ársins er rétt handan við hornið. Skotnar verða 100 dúfur + 25 í final.
5 Benelli byssur verða á boðstólum til notkunar fyrir þáttakendur, 1 stk M2, 1 stk SBEII, 2 stk Vinci og 1 stk 828U tvíhleypa.
Keppt verður í tveimur flokkum, A og B.
Vegleg verðlaun að venju fyrir efstu þrjú sætin í báðum flokkum.
Grillað verður og góða skapið verður í fyrirúmi að venju.
Hlökkum til að sjá sem flesta!