Umgengnisregluradmin422016-05-17T21:31:01+00:00
Umgengnisreglur
- Byssur skulu hafðar opnar og óhlaðnar þar til viðkomandi skotmaður hefur tekið sér stöðu á skotpalli.
- Byssur eiga að vera án óla.
- Ef skotmaður vill munda óhlaðna byssu skal hann haga sér sem um hlaðna byssu sé að ræða og fylgja 1 grein.
- Hámarks hleðsla skota er 28 gr..
- Óheimilt er að hafa fleiri en 3 skot í fjölskota haglabyssu.
- Skotmenn skulu ganga snyrtilega um svæðið og henda hylkjum og öðru rusli í ruslatunnur.
- Aðeins er heimilt að stunda æfingar á auglýstum æfingartímum eða með samráði við vallarstjóra og aðeins á tilgreindum svæðum. Hafa skal samráð við vaktstjóra áður en æfingar eru hafnar.
- Bannað er að láta hunda ganga lausa á svæðinu.
- Bannað er að skjóta á fugla eða önnur dýr á svæðinu.
- Bannað er að skjóta af rifflum á svæðinu.
- Vaktstjóri er einráður á svæðinu á meðan á æfingum stendur.
- Framvísa skal félagsskírteini Skotvís eða gildri kvittun fyrir greiðslu gjalda vilji menn skjóta á félagsgjaldi.
- Félagið bendir öllum á að hver og einn er ábyrgur fyrir sér og sínum vopnum á svæðinu, eins og alls staðar.
- Brot á þessum reglum geta valdið brottrekstri af svæðinu og kæru til lögreglu.