Aðalfundur Skotreynar verður haldinn miðvikudaginn 17. mars í félagsheimili Skotreyn á Álfsnesi.  Fundurinn hefst klukkan 19 og áætlað er að hann standi til klukkan 21.  Dagsskrá fundarins er eftirfarandi: 

  • Setning fundar.
  • Kosning fundarstjóra / fundarritara og ályktað um lögmæti fundar.
  • Skýrsla formanns.
  • Birting og samþykkt ársreiknings vegna ársins 2020.
  • Kosning stjórnar, varamanna og skoðunarmanna.
  • Önnur mál.   

Sendir hafa verið greiðsluseðlar í heimabanka. Til að hafa atkvæðisrétt á aðalfundi og bjóða sig fram til stjórnar þarf að hafa greitt félagsgjald.  Úr lögum Skotreyn:  [..] Formaður setur fundinn og skal fundarstjóri kosinn í upphafi fundar. Stjórn skal gera upp árangur liðins árs með skýrslu formanns og birtingu ársreikninga. Aðeins fullgildir félagar mega vera þátttakendur í aðalfundi, nema með sérstöku boði stjórnar og skulu þeir þá eigi hafa atkvæðarétt enda eru þeir ekki fullgildir félagar.  Greiðsluseðlar vegna félagsgjalda 2021 eru sendir út af Skotvís. Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna.