Aðalfundur Skotveiðifélags Reykjavíkur og nágrennis (Skotreyn) 2015, verður haldinn miðvikudaginn 18. febrúar kl 20:00 í félagsheimili Skotreynar Álfsnesi.
Dagskrá
- Fundur settur og fundarstjóri kosinn.
- Fundarritari kosinn og ályktað um lögmæti fundarins. („Stjórn skal boða til aðalfundar eigi síðar en 10 dögum fyrir uppgefinn fundartíma og skal að lágmarki birta auglýsingu á vefsíðu félagsins.“)
- Skýrsla formanns
- Birting og samþykkt ársreiknings
- Ákvörðun félagsgjalds
- Kosning stjórnar og varamanna. Úr stjórn gengur ritari, Jón Kristinsson, sem jafnframt er varaformaður og tveir meðstjórnendur: Bjarni Jónsson og Valgerður Guðjónsdóttir. Áfram sitja Egill Másson formaður og Friðrik S. Einarsson. Á fundinum verður því kosinn ritari og 2 meðstjórnendur til tveggja ára. Tveir varamenn voru kosnir 2014 til tveggja ára: Þórir Friðriksson og Ragnar Már Helgason.
- Kosning skoðunarmanna ársreiknings.
- Önnur mál
Kaffi og kökur verða í boði handa fundargestum
Samkvæmt samþykktum félagsins mega aðeins fullgildir félagar vera þátttakendur í aðalfundi, nema með sérstöku boði stjórnar og skulu þeir þá eigi hafa atkvæðarétt enda eru þeir ekki fullgildir félagar. Á aðalfundi hafa atkvæðarétt allir fullgildir félagar þess starfsárs.
Kveðja stjórnin.