Keppnisreglur í mótum á vegum SKOTREYN

  1. Mótanefnd fer með aðalframkvæmd móta sem haldin eru af félaginu.
  2. Dómarar eru þáttakendur sjálfir eða valdir dómarar sem munu halda reglum og stigagjöf réttri.
  3. Virða skal ákvarðanir dómara. Vafamál má leggja til endurskoðunar hjá dómurum á velli.
  4. Há byssa er leyfð. (Byssa við öxl)
  5. Skotmaður ræður hvor dúfan er skotin í double. Nema annað sé fyrirfram ákveðið af mótanefnd.
  6. Gleymi skotmenn öryggi á skotvopni skal endurtaka, en samt aðeins eitt tækifæri gefið í hverjum hring.
  7. Stoppi byssa vegna skota eða einhverja bilana skal sýna dómara á palli strax hvað sé að og ekki losa skot fyrr en dómari leyfir.
  8. Fara skal eftir reglum félagsins um 28gr. hámarks hleðslu
  9. Ekki skal trufla aðra keppendur með vítaverðum hætti á meðan þeir er í skotstöðu.
  10. Við alvarleg brot á þessum reglum mun keppandi missa þáttökurétt á því móti sem er í gangi