Nýliðadagur í Álfsnesi

Nýliðadagur, 10. maí kl: 11:00 – 15:00. Skotreyn býður nýliðum og byrjendum í leirdúfuskotfimi og skotveiði að koma á svæðið og skjóta undir ókeypis leiðsögn skotmanna með góða reynslu. Fyrirkomulagið verður þannig að hver kemur með sín skot og borgar hringina sjálf/ir. Leiðbeinendur verða á völlunum og reyna að hjálpa þeim sem vilja læra betur [...]

Vopnaþing – riffilhlaupskoðun og hreinsun skotvopna

Vopnaþing - riffilhlaupskoðun og -hreinsun, fimmtudag 8/5 2014, kl 19:30 Í samstarfi við Arnfinn Jónsson byssusmið verður boðið upp á hlaupskoðun og tilsögn í hreinsun á riffilhlaupum í félagsheimili Skotreynar á Álfsnesi. Hugmynd okkar er að þið komið með hreinsaða riffla eins og þið þrífið þá og verður ykkur bent á vankanta á því ef [...]

Íslenski refurinn – samstarf vísinda- og veiðimanna

Ester Rut Unnsteinsdóttir framkvæmdastjóri Melrakkasetursins verður með fyrirlestur um Íslenska refinn í félagsheimili Skotreynar Álfsnesi fimmtudaginn 21, mars kl. 20.00. Félagsmenn Skotreynar eru hvattir til að mæta og fræðast um hið stórmerkilega dýr. Ester er líffræðingur í doktorsnámi við Háskóla Íslands með langa reynslu af refarannsóknum sem hún tók fyrst þátt í árið 1998 á [...]

Konukvöld Skotreynar

Konukvöld Skotreynar verður haldið á æfingasvæði félagsins, miðvikudaginn 14. september frá kl. 17-20. Leiðbeinendur verða á staðnum og Benelli Vinci byssurnar klárar fyrir þær konur sem vilja prófa. Allar velkomnar. Stjórnin